3.3 Stærðir sjóðsins

Trygg­inga­fræði­leg staða

Athugun á tryggingafræðilegri stöðu hefur þann tilgang að meta eignir sjóðsins á móti þeim skuldbindingum sem felast í áunnum réttindum og framtíðarréttindum sjóðfélaga til lífeyris.

Í tryggingafræðilegri úttekt er metið hvort jafnvægi sé milli heildareigna og heildarskuldbindinga lífeyrissjóðsins. Þannig er annars vegar lagt mat á hreina eign sjóðsins til greiðslu lífeyris ásamt reiknuðu núvirði framtíðariðgjalda virkra sjóðfélaga og hins vegar núvirði væntanlegs lífeyris vegna þegar greiddra iðgjalda. Ef mismunur, á þannig reiknuðum heildareignum og heildarskuldbindingum, er meiri en 10% er hlutaðeigandi sjóði skylt að gera nauðsynlegar breytingar á samþykktum sjóðsins. Sama gildir ef munur hefur haldist meiri en 5% samfellt í fimm ár. Miðað er við að ávöxtun eigna sjóðsins verði árlega 3,5% umfram hækkun vísitölu neysluverðs. 

Niðurstaða tryggingafræðilegrar athugunar fyrir A deild og V deildar eru innan þeirra marka sem áskilin eru í lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

Reikniforsendur um örorku-, giftingar- og barnalíkur eru óbreyttar frá síðustu tryggingafræðilegri athugun sjóðsins. Hvað varðar örorkulíkur er miðað við reynslu áranna 2018-2023 með aðlögun að reynslu hverrar deildar hjá Brú. Giftingarlíkur og meðalaldur maka og barneignalíkur byggja á reynslu áranna 2019-2023.

Miðað er við að ávöxtun eigna sjóðsins verði árlega 3,5% umfram hækkun vísitölu neysluverðs

Áfallin lífeyrisskuldbinding

fjárhæðir í m.kr.

Áfallin lífeyrisskuldbinding sýnir réttindi sem núverandi sjóðfélagar og lífeyrisþegar hafa áunnið sér.

20252024202320222021
Ellilífeyrir320.989287.766256.452238.831201.168
Örorkulífeyrir34.48630.54427.14825.30420.400
Makalífeyrir7.9137.1095.8135.4684.671
Barnalífeyrir876809792700549
Núvirði framtíðarrekstrarkostnaðar*5.4354.7764.2033.6943.149
Áfallin skuldbinding samtals369.698331.004294.406273.997229.937
*Núvirði framtíðarrekstrarkostnaðar telst frá árinu 2020 til skuldbindinga en var áður til frádráttar eignum.