3.4 Stærðir sjóðsins

Ið­gjöld

Iðgjöld veita réttindi til eftirlauna og áfallatrygginga.

Iðgjöld eru greidd til A og V deildar sjóðsins af heildarlaunum en eru almennt greidd af dagvinnulaunum í B deild. Réttindi sjóðfélaga í R, E og B deild eru tryggð með bakábyrgð launagreiðanda.

Iðgjald í A deild er 15,5% af heildarlaunum þar sem hlutur launþega er 4,0% og mótframlag launagreiðanda er 11,5%.

Iðgjald í V deild er 15,5% af heildarlaunum þar sem hlutur launþega er 4,0% og mótframlag launagreiðanda er 11,5% en hægt er að ráðstafa 3,5% af lágmarksiðgjaldi launagreiðanda í séreign.

Iðgjald í R, E og B deild er 12,0% af dagvinnulaunum og eftir atvikum af vaktaálagi og orlofs- og persónuuppbót. Ekki er greitt iðgjald af yfirvinnu. Hlutur launþega er 4,0% og mótframlag launagreiðanda er 8,0%.

Virkum sjóðfélögum sem greiða iðgjöld í A og V deild fjölgar á milli ára.

Iðgjaldagreiðslur

eftir deildum árið 2025

Meðalaldur

Meðalaldur virkra sjóðfélaga eftir deildum á árinu 2025.

A deild36,3ára
V deild39,4ára
R deild60,6ára
E deild60ára
B deild62,4ára

Launagreiðendur

fjöldi árið 2025

V deild er öllum opin og hefur því fleiri launagreiðendur en hinar deildirnar.

Launagreiðendur

tíu stærstu (fjárhæðir í m.kr.)
Launagreiðendur2025Hlutfall
1Reykjavíkurborg8.41831,7%
2Kópavogsbær2.1728,2%
3Hafnarfjarðarkaupstaður1.6106,1%
4Akureyrarbær1.1194,2%
5Garðabær1.0043,8%
6Mosfellsbær8323,1%
7Reykjanesbær8113,1%
8Sveitarfélagið Árborg6002,3%
9Strætó bs.4271,6%
10Slökkvilið höfuðborgarsvæðis bs3931,5%
Aðrir9.15634,5%
Samtals26.543