2.1 Sjálfbær lífeyrissjóður

Stefn­um á sjálf­bærni

Hvetjandi afl

Brú lífeyrissjóður er nú í fimmta sinn að birta sjálfbærniskýrslu og sjálfbærniuppgjör samhliða ársskýrslu. Vegferð sjóðsins í sjálfbærni er í stöðugri þróun og er jafnframt langtímaverkefni sem krefst þolinmæði og heiðarlegs uppgjörs.

Á árinu 2025 náðist sá mikilvægi áfangi að sjálfbærnistefna sjóðsins var fullmótuð og samþykkt af stjórn. Stefnan leggur grunninn að nálgun á umhverfis- og samfélagsmálum og stjórnarháttum, bæði í fjárfestingum og innri rekstri sjóðsins. Stefnan er vegvísir að markmiðum og skýrri ábyrgð[BP1] .

Fjárfestingastefna sjóðsins er eitt sterkasta hreyfiafl sjóðsins í sjálfbærni. Sem langtímafjárfestir með stórt eignasafn hefur sjóðurinn tækifæri og skyldur til að hafa áhrif á hegðun fyrirtækja, stuðla að sjálfbærri þróun og draga úr langtímaáhættu í fjárfestingum. Starfsmenn hafa bætt samskipti við stjórnendur og stjórnir fyrirtækja í eignasafni sjóðsins með það að markmiði að vera hvetjandi afl.

 [BP1]Ath. Setningu "vegvísir að skýrri ábyrgð", mætti fletja þetta út. "Stefnan er vegvísir fyrir markmiðasetningu ... Og hvetur til skýrrari ákvarðanatöku" ? Eða eitthvað svoleiðis

Sjóðurinn birtir nú í fimmta sinn sjálfbærniskýrslu og sjálfbærniuppgjör samhliða ársskýrslu

Hvernig höfum við áhrif?

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna gefa kost á að lýsa hvernig starfsemi sjóðsins hefur áhrif á samfélag og umhverfi. Brú lífeyrissjóður hefur frá upphafi lagt áherslu á tvö markmið, heilsu og vellíðan og aðgerðir í loftslagsmálum, og unnið markvisst að því að gera þau að raunverulegum leiðarljósum í starfsemi sinni.

Markmiðasetning sjóðsins er í stöðugri þróun í átt að sjálfbærni. Sjálfbærnimarkmið sjóðsins felast í að fjárfesta með ábyrgum hætti, draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, eflast í að innleiða sjálfbærniferla og huga að heilsu og vellíðan starfsfólks. Í þessari vegferð er mikilvægt að mæla árangur af sjálfbærnistefnunni og miðla upplýsingum með ábyrgum og gagnsæjum hætti.

Hér fyrir neðan má sjá helstu markmið okkar á sviði sjálfbærni og aðgerðir til að ná árangri í þeim efnum. Sjálfbærnimarkmiðin í töflunni eru flokkuð eftir tengingu við stefnur og reglur sjóðsins, og með tilvísun í heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og UFS-þætti. Sífellt er verið að byggja upp þekkingu á sjálfbærni og innleiðingu hennar í starfseminni allri.

Markmið og aðgerðir fyrir árið 2025 (eftir að uppfæra myndir)