2.2 Sjálfbær lífeyrissjóður

Heims­mark­mið­in

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun hafa fimm meginstef sem eru mannkynið, jörðin, hagsæld, friður og samstarf, og jafnframt er lögð áhersla á þrjár stoðir sjálfbærrar þróunar: hina félagslegu, efnahagslegu og umhverfislegu.

Öll heimsmarkmiðin eru tengd starfsemi sjóðsins með einhverjum hætti en ákveðið var að hefja vegferðina á innleiðingu tveggja þeirra: markmiði 3 – heilsa og vellíðan og markmiði 13 – aðgerðir í loftslagsmálum.

Sjóðurinn fylgir stefnu um ábyrgar fjárfestingar þar sem leitast er eftir því að samþætta sjálfbærniviðmið og fjárfestingarákvarðanir eftir því sem kostur er. Horft er til UFS-þátta og heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna og tekið tillit til þeirra að því marki sem rúmast innan hlutverks og fjárfestingarstefnu sjóðsins.

Heimsmarkmið 3

Heilbrigður vinnustaður er ekki aðeins gott markmið heldur er hann grundvöllur fyrir því að við getum sinnt hlutverki okkar vel. Við höfum lagt sérstaka áherslu á undirmarkmið 3.4 um geðheilbrigði og vellíðan.

Við höldum áfram að bjóða upp á sálfræðiþjónustu, heilsufarsmælingar og fræðslu um andlega og líkamlega heilsu. Þátttaka í þessum úrræðum hefur verið góð og bendir til þess að starfsfólk nýti sér þá möguleika sem í boði eru.

Sjóðurinn leggur ríka áherslu á heilsueflingu starfsfólks með styrkjum til heilsuræktar.

Leiðir að markmiðinu

eftir að uppfæra töflu
Aðgerðir á árinu 2024Mælikvarði
Skyndihjálparnámskeið
Fjöldi fræðsluerinda tengd andlegri og líkamlegri vellíðan1
Starfsánægjukönnun4,45 af 5
Þátttaka sjóðsins í sálfræðikostnaði starfsfólks
Stefna og viðbragðsáætlun vegna eineltis og áreitni
Samskipta og siðareglur
Samgöngustyrkur
Líkamsræktarstyrkur
Þáttaka í ferðakostnaði sjóðfélaga vegna viðtals hjá trúnaðarlækni
Sjóðfélagar hafa aðgang að þjónustu VIRK

Heimsmarkmið 13

Loftslagsbreytingar eru ein af stærstu langtímaáhættunum sem sjóðfélagar okkar standa frammi fyrir sem og fjárfestingasafn okkar.

Tvær tegundir losunar

Losun tengd starfsemi sjóðsins skiptist í tvo meginflokka sem eru gjörólíkir að stærð:

Losun frá rekstri – þ.e. losun frá skrifstofurekstri, ferðalögum og orkunotkun – nam 1,2 tCO2í árið 2025. Reynt er að draga úr losun eins og kostur er.

Fjármögnuð losun – þ.e. losun sem hlutast til af fjárfestingum sjóðsins samkvæmt PCAF aðferðafræðinni – nam 272.596 tCO2í árið 2025, samanborið við 233.087 tCO2í árið 2024. Þetta er langstærsti hluti loftslagsáhrifa okkar og þar liggur raunverulegt tækifæri til að hafa áhrif. Við fylgjumst með þróun þessarar tölu og gerum grein fyrir henni í sjálfbærniuppgjörinu okkar.

Kolefnishlutlaus fyrir árið2030

Leiðir að markmiðinu

Eftir að uppfæra töflu
Aðgerðir á árinu 2024Mælikvarði
SjálfbærnistefnaÍ vinnslu
Flokkunarhlutfall92%
Styrkur til kolefnishlutleysis100%
Fjöldi fræðsluerinda um umhverfismál9
Framkvæma mikilvægisgreininguLokið
Fjöldi viðskiptaferða3