3.7 Stærðir sjóðsins

Kostn­að­ur

Kostnaði sjóðsins er skipt í rekstrarkostnað og fjárfestingargjöld.

Allur skrifstofu- og stjórnunarkostnaður lífeyrissjóðsins fellur undir rekstrarkostnað. Þóknanir til fjármálafyrirtækja flokkast sem fjárfestingargjöld og skiptast þær í beinar þóknanir, sem greiddar eru samkvæmt samningum eða gjaldskrá, og óbeinar þóknanir sem koma fram í gengismun í viðskiptum eða vaxtatekjum.

Rekstrarkostnaður var undir samþykktri áætlun sjóðsins á árinu

Fjöldi stöðugilda

Síðastliðin fimm ár hefur meðalfjöldi stöðugilda hækkað.

Brú
26,2
28,4
2021
2025

Rekstrarkostnaður

eftir tegund árið 2025

Lykilhlutföll

Oft er horft á rekstrarkostnað í hlutfalli við aðrar stærðir sjóðsins eins og iðgjöld og meðalstöðu hreinnar eignar.

A deild3,1%Hlutfall af iðgjöldum 2025
V deild1,9%Hlutfall af iðgjöldum 2025
R deild10,4%Hlutfall af iðgjöldum 2025
E deild10,1%Hlutfall af iðgjöldum 2025
B deild3,6%Hlutfall af iðgjöldum 2025
A deild0,16%Hlutfall af hreinni eign 2025
V deild0,16%Hlutfall af hreinni eign 2025
R deild0,23%Hlutfall af hreinni eign 2025
E deild0,74%Hlutfall af hreinni eign 2025
B deild0,83%Hlutfall af hreinni eign 2025

Bein fjárfestingargjöld

fjárhæðir í m.kr.

Bein fjárfestingagjöld lækka um 3% frá fyrra ári.

Óbein fjárfestingargjöld

fjárhæðir í m.kr.

Óbeinar þóknanir erlendra sjóða hafa hækkað mikið á síðustu árum sem er í takt við stefnu sjóðsins um stækkun eignaflokksins.